|
Frumsýning og sumarópera
Jæja, nú er búið að frumsýna myndina Þrönga Sýn eftir þá kumpána Guðmund Arnar Guðmundsson og Þórgný Thoroddsen. Hún var sýnd í Regnboganum laugardaginn 9. apríl fyrir fullum sal og þótti öllum mikið til koma. Boðið var upp á rauðvín, hvítvín og kók áður en myndin byrjaði. Áður en ég mætti á frumsýninguna fór ég í inntökupróf fyrir Sumaróperuna. Ég var valin (auk 49 annarra) í kórinn. Daginn eftir naut ég þess að hanga með kærastanum mínum allan daginn í fyrsta sinn síðan.. ég veit ekki hvenær. Við fengum gesti í sunnukökur (pönnukökur, bakaðar á sunnudegi), svo fór Gústi reyndar í viðtal á rás 2, svo fórum við í sund með nokkrum félögum, svo voru hitaðar nokkrar pitsur og tyrkneskur réttur og loks spilað partý og kó fram til miðnættis. Já, það var nú gaman! Gústi og Gummi eru í Íslandi í dag á eftir (klukkan svona 19, en hún er korter yfir sex núna) Sjáumst :)
skrifað af Runa Vala
kl: 18:08
|
|
|